Sarpur fyrir ágúst, 2007

30
ágú
07

Annar brandari heheh

Ég verð að deyla þessum brandara með ykkur hehe hann er ferlega góður

Mánuður fram yfir

Þegar ungur eiginmaður kemur heim eitt kvöldið tekur konan á móti
honum með því að hlaupa upp um háls honum og segja; Ástin ég er
kominn einn mánuð fram yfir. Ég er viss um að nú er ég ófrísk,
heimilislæknirinn okkar sagði að hann gæti ekki fullvissað mig um fyrr
en hann fengi niðurstöðu úr rannsókninni á morgun og við skyldum þegja yfir þessu þangað til.

Að morgni næsta dags kom maður frá Orkuveitunni til þess að loka
fyrir rafmagnið, þar sem ungu hjónin höfðu ekki greitt síðasta
reikning. Hann hringdi dyrabjöllunni og þegar unga frúin kom til
dyra sagði hann; “Þú ert kominn mánuð fram yfir”. “Hvernig í ósköpunum
veist þú það?” spurðiunga frúin. “Nú það er allt svona skráð kyrfilega í tölvukerfi
Orkuveitunnar” var svarið. “Heyrðu þetta sætti ég mig sko ekki við
og ég ætla að tala við manninn minn í kvöld og hann mun örugglega hafa samband við ykkur
á morgun” sagði unga frúin og skellti hurðinni.

Þegar eiginmaðurinn kom heim fékk hann að heyra allt um
persónunjósnir Orkuveitunnar og hann fór vitanlega öskuvondur á fund Alfreðs
Þorsteinssonar morguninn eftir. “Heyrðu Alfreð þetta er nú
algjörlega út í hött. Hvað eiginlega í ósköpunum gengur að ykkur, þið eruð með það
í skrám ykkar að við séum kominn mánuð fram yfir, hvern andskotann að
kemur ykkur það við?”.

“Slakaðu nú á þetta er ekkert mál, borgaðu okkur bara og þá tökum
við þetta úr skránni okkar.”svaraði Alfreð. “Borga ykkur ert ekki
í lagi, nú ef ég hafna því hvað þá?” “Nú þá klippum við bara á og
tökum þig úr sambandi.” “Og hvað á þá konan mín þá að gera?” “Nú
hún verður þá bara að nota kerti” svaraði Alfreð.

Kveðja smuga

23
ágú
07

……. kominn miðvikudagur……..

Jæja þá fer að stitast í skólnn hjá mér :)

Ég er ekki búin að gera mikið í specalinum eins og ég ætlaði mér hehe. slank það er rétt hjá þér specal er lokaritgerðin mín. Og ætla ég að skrifa um sikkerheds og sundheds ind på bygganlæg. Á ísl. öryggi og heilbriði inn á byggingarsvæð eða einkvað í þá áttina.

Núna þarf ég að sparka betur í rassin á mér :) ég hef verð að taka til í mataræðinu með hangandi hendi ef það er hægt að orða það þanni. Ég hef ekki verðið að þyngjast en ekki létast heldur. Ég hef verið að rokka niður og upp um 2 kg, og núna nenni ég þessu ekki meira. Núna ætla ég að byrja að vinna í mínum málum :)

kveðja smuga

19
ágú
07

Brandari hehe..

Vinkona mín sendi mér þennan brandara mér finnst hann svo góður að ég ætla að deyla honum mér ykkur :)

Mér fannst þetta alveg típískt fyrir karlmann, alltaf kellingin sem er ömurlegur bílstjóri ;)
Á að leyfa konum að keyra bíla svona yfirleitt..??

Þegar ég (Bjarni) var á leiðinni upp Ártúnsbrekkuna í morgun leit ég til hliðar og þar var kona á splunkunýjum BMW.

Hún var á svona 120 km hraða með andlitið upp í baksýnisspeglinum og var á fullu að sminka sig með meikup-græjurnar í sitt hvorri hendi og annan olbogan á stýrinu.

Ég leit fram á veginn eitt augnablik og næst þegar ég leit á hana var bíllinn hennar á leiðinni yfir á mína akrein og samt hélt hún áfram að mála sig eins og ekkert væri sjálfsagðara.

Mér brá svo mikið að ég missti ferðarakvélina mína á roastbeefsamlokuna sem ég hélt á í vinstri hendinni. Í panikkinu við að afstýra árekstri við konuhelvítið og ná stjórn á bílnum sem ég stýrði með hnjánum, datt gemsinn minn úr hálsgrófinni og ofan í kaffibollann sem ég var með á milli fótanna. Það varð til þess að brennheitt kaffið sullaðist á Orminn Langa og tvíburana tvo.

Ég rak upp öskur og missti við það sígarettuna úr munninum og brenndi hún stórt gat á sparijakkan og ég missti af mikilvægu símtali!

Hvað er að þessum helv…….. kellingum?

17
ágú
07

Vika eftir af fríinu :) ætla að njóta hennar :)

Jæja þá er ég búinn með praktíkina :) þetta var frábær reynsla.

Skólinn byrjar semsagt eftir viku og ég er aðeins byrjuð að skirfa spcalin minn :) uffff mér finnst rosalega erftit að komast á stað að skrifa hann :( jú þetta er erftit efni til að skrfa um en mér ég er með fullt af humyndum en veit bara ekki hvar ég á að byrja…. En þetta kemur allt :) Og skólin ég var einmitt að spá í hvað ég ætti mikið eftir og jú það er ekki nema 5 mánuðir :) Ég held að þetta verður frábær upplifun að standa uppi eftir prófið og vera orðinn byggingarfræðinug :) öll þessi ár búinn og allt þetta púl og allt þetta álag og allur þessi kvíði fyrir prófinn er búinn :) Ohhh ég get ekki beðið :)

Ég er byrjuð á því að fara í góðan göngu túr á kvöldin með hundin :) og skokka svona inn á milli :) svo ég get sagt að ég er byjruð að hreyfa mig.

Ég er á fullu að njóta þess að vera í frí núna :) jú þessi vika alltof fljót að líða og er bara búinn :( og ég hef aðeins eina viku eftir til að njóta í frí :) svo ég ætla að njóta hennar eins vel og hægt er hehehe…

Jæja ég ætla að halda áfram að gera kíkja á specalin minn og vona að ég komist í gang með hann sem fyrst og verði búinn með sem mest þegar skólinn byrjar.

knús til ykkar og tak fyrir að kíja hérna inn :) kveðja smuga

04
ágú
07

Sumar og sól :)

Þá er loksins komið sumar hjá okkur aftur :) sumar og sól alla vikurna :) og síðasti vinnudagurinn minn er á fimmtudag :) ekki það að ég sé ánægð að vera ekki meira í vinnuni ég væri alveg til í að vinna lengur hjá þeim þetta hefur verið svo skemtilegur tími að hálfa væri nó. En alla vega þá er þessi tíma að verða búinn og svo hef ég tvær vikur í frí og svo skolinn.

Jú Begga ég er aðeins byrjuð á ritgerðinni en ég byrja á fullu á henni þegar ég er búinn með praktíkina :) en ég væri byrjuð núna ef ég væri ekki svona þreytt þegar ég kem heim úr vinnuni :)

En af mér er svosem lítið annað að fretta þessa dagana en ég blogga meira eftir vikuna þegar praktíkin er búinn :)

kveðja smuga