Sarpur fyrir desember, 2006

15
des
06

Jóla hvað….

Þetta er ótrúlegt með hvað tíminn flígur frá manni :) en allavega þá er búinn að hafa nó að gera, kaupa jólagjafir og gera jólakortinn en síðan betur fer er maður farinn að sjá fyrir endan af þessu öllu :) En mér finnst svo gaman að hafa svona tíma fyrir jólinn og geta dundað mér við jólaundirbúninginn því síðustu 3 jól hef ég verið í prófum og hef verið að klára prófinn í kringum 20 des og enginn tími í neit en núna get ég gert allt sem ég vil fyrir jólinn gert kortinn sjálf og allt ;) ein jólinn gerði mamma kortinn fyrir mig hihihi því ég ætlaði að sleppa þeim en nei hún vildi frekar gera þau fyrir mig en að ég sleppti þeim hihihi…

Með mataræðið þá hef ég ekki verið of dugleg en ekki að þyngjast svo þetta er svosem í lagi enþá en ég veit alveg að ég get þetta, svo það er bara að byrja. Ég ætla að passa mig um jólinn en að leyfa mér smá líka, svo ég verð ekki ströng við mig um jólin matarlegaséð.

Með litlu dúlluna þá gegnur mjög vel :) hún er að þyngjast um 200 gr á viku svo ekki er hægt að kvarta yfir því að hún þyngist illa enda oriðnn 4 kg og 54 cm :)

jæja ég knús til ykkar allra :) kveðja smuga

10
des
06

Ég er hérna enþá :)

Það er bara svo að ég hef minni tíma í að leika mér á netinu þessa dagana :) Ég verð nú alveg að viðurkenna að ég var búinn að gleyma hvað þessi kríli taka mikinn tíma :) En þau eru ALVEG ÞESS VIRÐI SKO…. mér finnst svo inndilsegt að dúlla við hanna Kamillu Dís. Ef hún sefur illa á nóttinni þá höfum við bara leigið í ruminu fram að hádeigi :) en þetta er allt að koma hjá henni hún er farinn að sofa betur á nóttinni :) og ég passa bara það sem ég borða því hún er einhvað viðkvæm greynilega.

Með mig þá er ég öll að koma til ORKAN ER AÐ KOMA AFTUR síðan betur fer ég var ekki að nenna að vera svona eins og ég var…. En með mataræðið þá er það bara svona lala mætti vera mikið betra en vigtinn stedur í stað svo þetta er allt í lagi, en ég ætla að ná henni niður svo ég verð bara að sparka smá í mig þessa dagana :)

En ég fæ gesti um jólinn :) pabbi og Snorri bróðir ætla að koma til okkar um jólin og verða yfir áramótinn :) mér er bara farinn að hlakka til að fá þá til okkar enda eru þeir alltaf svo duglegiri að koma hingað til Danmörku til okkar….. En fyrsta skifti um jól….

jæja ég verð að fara að sinna heimilinu og svo kíkji ég á blogg rúnt í dag kveðja smuga

03
des
06

Vantar smá spark…

Það er ekki að ganga nóu vel hjá mér þessa dagana, því miður. Ég er svo þreytt allan daginn, ég missti mikið blóð eftir fæðinguna, en ég er búinn að vera dugleg að taka inn járn töflurnar mínar og tek inn vítamín og svo drekk ég extra C-vítamín inn líka og ég er ekki að ná mér upp úr þessari þreytu. Ég hef smá áhyggjur að því að sykursýkinn sé ekki alveg genginn til baka, því munsitið er eins og ég þekki, þreyttust í hádeiginnu og fram á dag og hressust á kvöldinn. Alveg sama munstur og var þegar ég var sem verst með sykursýkina. Eða þá þetta sé bara blóðleysið að plaga mig. En allavega gekk mjög vel með mælingarnar á blóðsykinum á spídalanum svo ég er ekki að hafa neinar stóraráhyggjur af því þetta er meira svona pæling hjá mér.

En allavega þá vantar mig spark frá ykkur mér hafur ekki gengið vel að koma mér upp góður matarvenjum afur :( En núna verð ég að taka mig til því ég ætla ekki að detta inn í þetta gamla munstur aftur. Ég á svo stutt eftiri í næsta tug og ég vill ná því sem fyrst. Og ég veit að ég get þetta alveg :) Ég veit allavega allveg hvað ég á að gera og hvað ég á að borða það er ekki málið það er bara að koma sér upp rútínunni aftur.

jæja núna verð ég að taka mig á aftur og verða kominn í kjörþyngd fyrir sumarið :) Markiðið mitt er að vera búinn með 16 kg í mai 2007 :) og þá ætti ég að vera kominn í mína kjörþyngd.

kveðja smuga