19
okt
08

Komin heim :)

Eins og margir vita þá var ég á klakanum. Við komum til að kaupa bíl og þar að leiðandi lítill tími til heimsóknar. En bíllinn gekk fyrir og á endanum fundum við ein og komum honum í gám :) þvílík tímapressa hehehe….

Frá því eð ég var lítil stelpa eða 2 ára gömul hef ég verið með gleraugu, og virkilega slæma sjón. Þar til þann 9 okt hef ég verið með +6 á báðum eftir þann 9 okt skeði kraftaverk :) ég er án gleraugna í dag. Já ég fór til lasersjon og gekk undir laser hjá þeim og þetta er lígi líkast :)

Jæja ég vildi endilega deyla þessu með ykkur en ég blogga meira þegar búið er að taka upp úr töskum :)

kveðja lína

26
ágú
08

Jæja þá er pabbi kominn í heimsókn til okkar :) hann verður hjá okkur í 3 vikur. Krökkanum finnst ferlega gaman að fá afa gamla í heimskókn. En allavega þá byrjuðum við pabba að fara á götufest hérna í götunni hjá mér sem var á laugardeiginum og rulluðum við heim kl 3.30 um nóttina :) næsta dag spyr pabbi Sigrúnu mína hvort hún viti ekki um einhverja konu handa sér, mín hélt það nú og svararð á móti jú jú það er fullt af þeim á elliheimilinu lol…… hehehe… Já mín stelpa er hrein og bein eins og mamma sín heheh…

Siggi var að fá stöðuhækkun í vinnuni er er orðinn yfirkokkur yfir eldhúsinu á Skandic i Horsens. Þeir voru svo ánægðir með vinnuna hjá honum að hann er nátulega búinn að fá launahækkun og svo fáum við 3daga uppihald á Skandic i Fredrikshavn :) svo við erum að fara á fimmtudaginn og komum afutr á laugadaginn :) Tíddi er svo sættur að hann ætlar að leyfa tinnu okkar að vera og gefa fiskanum að borða :) svo ekki þurfum við að hafa áhyggjur af öllum dýranum á meðan haha…

Svo er nágrannin minn að spurja mig að taka af mér verkefni með að teikna viðbyggingu á fyrirtækið hanns. Þetta er risa bygging og á að bæta við auka hæð og allt… Jú ég bíst við því að taka þetta af mér en þetta verður kikil vinna. Ég er sammt ekki alveg búinn að svara 100 % já en ég bít við því :)

Siggi verður 35 ára þann 9 sep. en við ætlum að halda upp á það þann 6 sep. og verður nátulega glæsilegur mattur í boði af hætti Sigga :) ummm…

Friðrikk og Hrafnhildur INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ DÓTTIRINA :) mér hlakkar ekki smá til að kíkja á ykkurl. Hérna er síðan þeira :)

Jæja ég er allavega byrjuð að blogga aftur :) bæbæ dúllur.

16
ágú
08

Blogg blogg blogg :)

Já ég veit að ég er búinn að vera ódugleg að blogga það er kannski vegna þess að mér finnst ég ekki hafa neit að seigja.

Ég er ekki enþá búinn að finna vinnu hérna í Danmörku :( allveg ferlegt…. en í staðinn er ég búinn að finna sjálfa mig :) já eftir mikla leit, og leit útum allt þá loksins komég í ljós hahaha… Ég er farinn að spila á gítarinn minn aftur, fer reglulega upp á skotsvæði og skjóta leirdúfur, les bækur ánþess að hafa samviskubit vegna lærdómsins, já og taka myndir annaslagið :) semsagt ég er að finna áhugamálin mína aftur :) Svo er það bara að halda áfram að leita eftir vinnu þá er þetta fullkomið :)

Siggi var að fá í umbun á scandic Hotel i Frederikshavn með fríu uppihaldi :) honum var umbunað vegna vel unnið starf, hann að leisa yfirmannin af á meðna hann var í sumarfríi og þeir voru svo ánægðir með hann að þeir spurðu hvort hann væri til í að þykkja þessa gjöf :)

Svo núna eigum við bara eftir að finna helgi sem passar okkur :)

Pabbi er að koma í heimsókn til okkar þann 23 ágúst enda allir farinir að hlakka til að fá karlinn til okkar :) svo núna fer ég að gera herbergið tilbúið fyrir hann svo að honum eigi eftir að líða vel hérna hjá okkur :)

kveðja lína

08
jún
08

Djurs sommerland

Já þá smá blogg af mér. Mæja og Danni eru að koma til okkar, Danni er að fara að keppa í torfæru hérna í danmörku og keppnin fer fram hérna í Arhus svo þau skötuhjú ætla að vera hjá okkur :) hoo mig hlakkar svo til að sjá þau :) Svo næsta helgi verður á torfæra :)

Við systkynnin fórum í Djurs sommerland á Laugardaginn með alla krakka skaran og þvílíkur hittiiiiii….. við vorum hreynt að deyja í restina á deiginum, enda búið að vera um og yfir 30 gráður allan daginn.

Stundum er voða gaman að fá sól og hita en þegar þetta er búið að vera dag eftir dag og komið yfir mánuður þá vill maður smá skí og smá rigningu :( Það er eins og maður getur aldrey verið ánæður annað hvort er það of heitt eða of kalt, eða gott sumar eða slæmt sumar :)

Ég og hóf vorum vitni af ferlega óþæginlegu þarna í Djurs sommerland. Við hliðina á okkur sátu tvö pör og önnur kona ásamt eini eldri konu, ásamt um 7 börnum. Svo tökum við eftir því að ein af mönnunum heldur á þessari svakalegu jónu :( hann kveiti í henni og var að reyka hana þarna ásamt hinum karklinum fyrir framan alla ÉG BARA Á EKKI TIL ORÐ….. þeir voru bara ekkert að fele þetta. ÆJI ÉG VORINNI ÞESSUM BÖRNUM….

Svo er þetta blessaða verkfall ufff.. Sigrún mín hún er að lenda í þessu og er ekki búinn að mæta í skólan í 3 vikur, en Kristinn hann sleppur það er búið að vera skóli hjá honum en eftir skólinn er lokaður. Kamilla Dís er hjá Dagmömmu svo hún sleppur við verkfallið en leikskólar eru lokaðir. Plús að allar hjúkkur eru líka í verkfalli, þetta er nú meira ástandið. Ég vorinni fólki sem er bæði í fullri vinnu og meiga ekki við þessu, en síðan betur fer þá er ég enþá atvinnulaus svo þetta bitnar ekki á mér.

jæja núna ætla ég að hætta þessu bulli hérna :)

kveðja lína

26
maí
08

Smá frettir af mér….

Jæja ég er hérna enþá og er víst ekkert á leið neit :) Ég verð bara að setja í gírinn og finna vinnu hérna í danmörku í smá tíma. Ég er búinn að búa héna í 7 ár og ætti nú alveg að þola að vera hérna smá tíma í viðbót :) fasteigna markaðurinn hérna er ekki góður svo ekki fer ég neit fyrr en ég sel og svo er það kreppa á klakanum :( ég verð að viðurkenna það að ég treysti mér ekki í að taka lán vegna verbólgunar…. þetta er ótrúlegt…. og svo var ég að lesa á síðuni hjá slank útreiknig sem hún sýnir fram á ef maður kaupir ufffff… en ég læt tíman og örlögin leiða þetta allt í ljós hvernig þetta verður hjá okkur :)

svo var ég úti að taka myndir eins og venjulega :) hérna er annað sýnis horn :)

Mér finnst svo æðislegt að fara út að taka mydir en því miður þá þori ég ekki ein út á kvöldinn svo ég er alltaf bundin eihverjum með mér :( ég vill ekki taka neina sénsa búnaðurinn sem eg nota við myndirnar er nálægt ef ekki meira en 500 þús, svo það er vel hægt að græða á því að ræna þetta dót sem ég tek með mér þegar ég fer út á kvöldinn til að taka myndir… svo það er þess vegna sem ég þori ekki ein…

ég var í einu atvinnu viðtali og hef ekki heyrt meira með það :( því miður…

jæja kveðja til allra Lína

20
maí
08

Smá sýnis horn hérna :)

Þetta tók ekki smá tíma að gera allt tilbúið til að sétja húsið á sölu hehehe… þetta er ekki eins og á íslandi að húsið sé komið á sölu næsta dag og nei…… það er panntaður ljósmyndari til að taka myndir, svo er ástands skoðunn á húsinu og reyknað út einangurn og bla bla bla….

En mér finnst rosalega gmana að taka myndir heheh eins og þið vitið og ég ætla að sína ykkur smá:

null

Svo svona eina í lit :)

08
maí
08

sól og sumar…

Jæja þá er komið að því að blogga :) heheh já ekki get ég sagt að ég sé dugleg að í því þessa dagana. En allavega þá er komið sumar hjá okkur og hittin er yfir 25 gráður hvern dag og þá meina ég í skugga og þarf maður að passa að bera sólarvörn á lítlu dúlluna :) svo var farið í dag og keypt handa henni sólhatta ekki ein heldur tvenna því mamman gat ekki gert upp á milli hvor ég átti að kaupa svo það var bara keyptir báðir :) mjög einföld lausn :)

Ferminginn hjá Fúsa gekk náturlega mjög vel og það var æðislegt að fá alla gestina til okkar :) Við systurnar áttum mjög góða stund saman.

Í dag var farið í bæinn og ég fekk loksins nýju linsuna í myndavélina mína sem ég er búinn að bíða eftir í mánuð :) ég fór náturlega strax út til að prófa og ég er ekki smá sátt við þessa linsu enda kostaði hún sitt og ætlast maður til þess að hún sé GÓÐ hehehe.

Húsið hjá okkur ætti að koma á sölu í næstu viku loksins ég hélt að það ætti að koma á sölu í dag en ég vona að það verður eftir helgi. Eins og flestir vita þá erum við á leið til íslands. Jú ég er búinn að heyra allt þetta ömurlega og mikla vexti og allt þetta svo endilega hlífið mér við því að cometna með svoleiðis punkta og ég á eftir að sjá eftir þessu og bla bla bla…. ég er búinn að heyra þetta allt og ekki einu sinni og ekki tvisvar heldur svo oft að ég veit ekki töluna lengur…. við erum búinn að taka þessu áhvörðun og ætlum í þetta volæði.

Þegar húsið selst þá verður tekinn ákörðun um dagsetningu að flytja :) mig hlakkar bara til enda búinn að fá nó á því að vera hérna…

jæja ég ætla að seigja þetta gott í bili :) kveðja Lína

21
apr
08

Ferming framundan.

Jæja núna stittist í ferminguna hjá Fúsa bróðir :) það er ótrúlegt hvað þessi börn eru fljót að stækka, hehe og svo dóttir mín að fermast eftir ár uff hvað ég er að veraða gömul :( en allavega þá eru gestirnir farnir að tínast til frá íslandi til okkar hérna í danmörku :) þetta verður ferlega skemtilegt að fá þau öll :)

Siggi minn mun elda fyrir veisluna enda annað ekki hægt :) enda þegar maður laumar á svona flottum kok þá verður maður að nýta hann eins og hægt er :)

Jæja en af okkur er svosem ekki mikið að frétta nema það að við erum að setja á sölu húsið okkar :) og markmiðið er að koma heim til íslands í sumar. Þar að seigja ef við seljum :) Ekki er annað hægt að seigja en að það er nó til á sölu af fasteignum á íslandi svo það er nó um úrval.

Ég er að tapa mér í myndavéla áhugamálinu hehe… þetta er frekar dýrt sport skal ég seigja ykkur og budda mín fær heldur betur að finna fyrir því :( en allaveg þá er kominn með ágætis pakka núna og ætti ekki þurfa mikið meira í viðbót að svo stöddu :)

jæja ég bið að heilsa í bili kveðja lína

11
apr
08

Smá blogg fyrir mömmu og Sólrunu..

Jæja ég verð víst að blogga smá :) mér líður hálf ansalega alltaf þegar ég skrifa hérna þá er einhver lasinn hérna og núna er það ég sem er orðinn kvefuð….. :(

En síðustu tvær vikur var ég á kursus hérna og vourm við að læra að gera gott CV svo ég tel mig allavega vera kominn með þetta fínasta CV eftir heilar tvær vikur :) Ég seigji það ekki að þetta hafi tekið mikið á hehehe…. en skemtilegt fólk sem var með mér í hóp og bjargaði það öllu :)

Kamilla Dís er svo dugleg stelpa og er út um allt og klifrar allstaðar og upp á allt. Um daginn var Elísabet í kaffi hjá mér og Lára, Natan og Kamilla vour inn í Kamillu herbergi að horfa á sjónvarpið. Svo stend ég upp og ætla að henda í uppvöskunar vélina og sé einhverja hreyfingu úti undir eldhús glugganum hummmm…. ég lít betúr á þetta og vitið menn kamilla var kominn út og var aðleika sér í blómabeðinu hjá mér…. mín fór upp í glugga og opnaði gluggan og fór út… :( svo ég get ekki einusinni haft hana inni í herberginu sínu….

Svo á kvöldinn þá kliftar hún upp úr rúminu sínu og við erum í vændræðum að láta hana í rúmið sitt því mín kemur bara fram eða fer að leiks sér í öllu því sem ekki má, en svo í gær þegar við vourm að fara að sofa þá er einginn kamilla í rúminnu hennar hummmm……. neinei mín lá sofandi upp í rúmi hja mömmu sinni og pabba :) þvílík dúlla…

Svo núna eru tvær fermingar veislur framundan hjá mer :) og eit barna afmæli svo það er svosem nó um að vera hérna næstu tvær vikur :)

jæja Sólrún og mamma þið fenguð þá smá blogg :) svo það er eins gott fyrir ykkur að comenta :)

kveðja lína

03
apr
08

Blogg hvað er það :o)

Já mikið rétt Elísabet að það er kominn tími á blogg hjá mér. En málið er bara að það er ekkert að frétta af mér… Jú ég er á kúrsus hja Jobcenter og verð þar út næstu viku.

Kamilla Dís er veik en eina ferðaina og ekki get ég séð að það gangi upp fyrir mig að fara vinna þegar ég er með barn sem er alltaf veik :( hún er heima á meðatlalið 2 vikur í mánuði ég er bara ekki að skilja þetta. En allavega er þetta fyrsta vikan í þessum mánuði sem hún er heima og ég vona að hún komist til dagmömmu í næstu viku.

Jú það væri gaman að koma yfir á Laugadaginn :) Elísabet….. ekki veitir af að komast út einu sinni :) ekki það að ég var úti í dag eða útí í garðinum fyrsti sltátturinn var í dag :) svo ég er búinn að slá blettinn hjá mér :) Svo verður blómabeðinn tekinn næst ælti það verður ekki um helgina sem ég mun taka öll blómabeðinn :) svo þá er garð vinnan byrjuð þetta árið :) I love it :)

Föstudagur á morgunn, og ekki er hægt að gera neit venga Kamillu, hún er svo veik litla dúllan ég bara veit ekki hvorn fótinn ég á að stíga í en ég ætla að fá læknirinn að kíkja á hana aftur á morgunn, þá annað skifti í þessari viku.

Jæja ég læt þetta nægja í bili kveðja lína